Meirapróf Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Stutt lýsing á námi til aukinna ökuréttinda / meirapróf á rútu, vörubíl og leigubil. Inntökuskilyrði: Til að fá inngöngu í skólann þarf viðkomandi að hafa almennt bifreiðastjórapróf og uppfylla aðrar þær reglur sem hið opinbera setur. Hægt er að hefja nám 6 mánuðum áður en réttindaaldri er náð. Réttindaaldur á vörubifreið og vörubifreið með eftirvagni er 21 ár, á leigubifreið er það 20 ár en réttindaaldur fyrir hópbifreið er 23 ár. Læknisvottorð þarf að fylgja umsókn um aukin ökuréttindi
Námstími: Sjá stundaskrá

Bóklegt nám til réttinda á vöru-, hóp- og leigubifreið tekur tæpar 5 helgar. Nemandi getur einnig lokið náminu á lengri tíma óski hann þess. Taki viðkomandi aðeins hluta réttindanna, tekur námið styttri tíma sem því nemur. Hver námsgrein gefur ákveðin fjölda eininga, samtals 5 einingar.
Kennslutími: Sjá stundaskrá

Verkleg kennsla fer að öllu jöfnu fram á tímabilinu 8.00 til 18.00 á virkum dögum, eða eftir samkomulagi milli nemenda og kennara.

Nemendur geta reiknað með að fyrsta verklegt ökupróf fari fram um það bil viku eftir að síðasta bóklega prófi lýkur, ef greiðslur nemanda hafa borist skólanum með eðlilegum hætti, og ekki hefur staðið upp á nemandan með það sem hann á að gera, s.s. að fá próftökuheimild hjá lögreglustjóra.

Þann fyrirvara þarf einnig að gera að einstaka sinnum geta miklar annir í prófadeild Frumherja lengt þennan tíma, en það heyrir til undantekninga.

Verkleg próf fara alltaf fram hjá Frumherja, á tímabilinu 8.00 til 16.00 á virkum dögum, skólinn leggur að sjálfsögðu til bifreið í prófið, hina sömu og kennt hefur verið á. Frumherji annast öll verkleg ökupróf í landinu.

Prófað er í bóklegum greinum í skólanum en próf í akstri eru á vegum ökunámsdeildar Frumherja en prófdómara koma oftast í skoðunarstöðina Athugun sem er í sama húsi og skólinn, Klettagörðum 11.
Prófakstur hefst þá þar og lýkur þar.

Hafið handbært fé eða kvittun fyrir greiðslu fyrir prófgjöldum til Frumherja, ásamt ökuskírteini við komu í próf. Snyrtilegur klæðnaður er áskilinn við verklegt próf og raunar í öllu skólastarfinu. Sérstaklega skal áminnt um snyrtilegan klæðnað í prófi til farþegaflutninga.

Ástundun: Nemendum ber að rækja nám sitt af samviskusemi og stundvísi. Mætingarskylda í bóklega námið er 80% en 100% í verklega þáttinn. Athugið að mæta þarf 80% hið minnsta í hverja námsgrein fyrir sig til að fá að gangast undir próf. Þetta eru ófrávíkjanlegar kröfur hins opinbera og skólinn fylgir þeim. Nemendur eru hvattir til að nota sér 100% það sem þeir borga fyrir, mæta 100%

Hvenær hefst námið?: Sjá stundaskrá

Nánari upplýsingar og pöntun á skólaplássi í síma 588 45 00. Þar er skólastjóri, Svavar Svavarsson fyrir svörum, Svavar tekur símann á tímabilinu 10.00 til 23.00, alla daga vikunar. Sé ekki svarað stafar það af því að það er verið að tala í símann, reynið stuttu síðar. Komi talhólf er Svavar bundinn í kennslu og hringir þá um leið og færi gefst, séu boð með uppgefnu símanúmeri í hólfinu.

Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga, kl. 8:00-12.00 og 13.00-16:00. en þar sér Bjartey Friðriksdóttir um fjármál skólans, sími þar er 568 15 80

Hægt er að senda tölvupóst: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það Gott er að fara á heimasíðu skólans í gegnum www.et.is en þar er takki fyrir skólann og þar sjást verðskrá og stundaskrá. og þær upplýsingar sem eru á heimasíðunni, s.s. stundaskrá og verðskrár eru þær nýjustu og þar með áreiðanlegustu upplýsingarnar.

Mjög hagnýtar upplýsingar um umferðarmálefni og ökupróf er að finna á vef Umferðarstofu www.us.is um ökupróf má einnig finna margt á www. frumherji.is


Fyrirvari
Í námskrá Umferðarstofu fyrir grunnnám eru fyrirmæli um tilskilið bóklegt nám til undirbúnings framhaldsnáms fyrir aðra flokka.
Í námskrám fyrir framhaldsnám eru fyrirmæli um bóklegt og verklegt nám fyrir réttindi:
- í flokki C, vörubifreið,
-í flokki D, hópbifreið með réttindum til faþegaflutninga í atvinnuskyni,
-í flokki BE, stór eftirvagn fyrir fólksbifreið,
-í flokki (CE/DE), eftirvagn fyrir stór ökutæki og
-til faþegaflutninga í atvinnuskyni fyrir flokk B (leigubílaréttindi).

Í grunnnámi eru kenndar fjórar námsgreinar í alls 52 kennslustundir. • Umferðarfræði (UF) – 12 stundir.
Umferðarsálfræði (US) – 12 stundir.
Bíltækni (BT) – 12 stundir.
Skyndihjálp (SK) – 16 stundir.

Eftir grunnnám velur nemi þá braut í framhaldsnámi sem varðar þau auknu ökuréttindi sem hann vill öðlast.

Til að fara í framhaldsnám verður að ljúka Grunnáminu og standast bóklegt próf úr því

Í framhaldsnámi eru þessar námsgreinar: •
Stór ökutæki (SÖ) - 32 stundir.
Ferðafræði (FF) – 16 stundir.
Eftirvagnar (EV) – 4 stundir.

Lágmarksfjöldi kennslustunda í fræðilegri og verklegri kennslu til aukinna ökuréttinda má sjá í eftifarandi.

Vörubifreið flokkur C í framhaldsnámi er tekin námsgreinin SÖ 32 st. en þá er námstími að meðtöldum grunni orðnar 84 st. en verklegir ökutímar eru 12 st. þar fyrir utann og síðan kemur próftími eða 13 ökutímar alls

Hópbifreið flokkur D, farþegaflutningarí atvinnuskyni að loknum grunni er tekið SÖ + FF 48 st. en þá er heildar bóknám orðið 100 st. verklegir tímar eru eins og á vörubifreið, 12. st. en sá 13. er þá próftíminn


Eftirvagn flokkar CE eða DE
Bóklegt nám fyrir eftirvagna er 4 st. en verklegt er 8 st. og sá 9 er próftíminn
Sá sem hefur tekið vörubifreið og bætir við vagninum er þá kominn með 88 st. bóklegt og samtals 22 ökutíma að meðtöldum próftímum

Fólksbifreið flokkur B, farþegaflutningar í atvinnuskyni þá þarf neminn að taka FF í framhaldsnáminum 16 st. og er þá kominn í 68 st. samtals
Verklegir tímar eru 3 og sá 4 í prófi.

Hafi ökunemi öðlast ökuréttindi í flokki C eða D og vill bæta við sig nýjum flokki, D eða C eftir því sem við á, má meta fjóra verklega tíma inn í námið. Hann þarf því að taka a.m.k. 8 verklegar kennslustundir fyrir seinni flokkinn.

Stundvísi og tímasókn
Nemi þarf skila að lágmarki 80% tímasókn í einstakar námsgreinar.
Nái hann ekki því lágmarki getur hann lokið tímasókn síðar í samráði við kennara og skólastjóra skólans.

 

Skráðu þig

 
 

Hér er Nýi Ökuskólinn

smelltu á myndina til að skoða kortiðkort

Innskráning