Vinnuvélanámskeið Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Skjót leið til starfsmenntunar. Námskeiðið sjálft kostar kr.65.000 og bækur lánaðar meðan á námskeiði stendur, en þær kosta annars kr. 7.900 ef fengnar eru til eignar
Ýtarlegri upplýsingar um námskeiðið en hér að neðan, fást hjá Svavari Svavarssyni löggildum öku og vinnuvélakennara í síma 822 45 02 frá kl. 10.00 til 22.00 alla daga vikunnar.

Vinnuvélanámskeiðið Nýja ökuskólans gefur rétt til prófs á allar gerðir og stærðir vinnuvéla. Námskeiðið er samkvæmt reglugerð Vinnueftirlits ríkisins, nauðsynlegt til þess að geta gengið undir verklegt próf á vinnuvélar og öðlast þannig fullgild vinnuvélaréttindi.



17 ára eða eldri, en almenn ökuréttindi eru forsenda þess að geta verið með vinnuvélar í umferð utan lokaðra vinnusvæða. Námið er þó hægt að hefja 3 mánuðum fyrir 17 ára afmælið. Námskeiðsstaður er í Reykjavík að Klettagörðum 11 Sundahöfn, en í sama húsi er verktaka og flutningafyrirtækið et og skoðunarstöð Frumherja. Næsta hús vestan við okkur er nýja Vöruflutningamiðstöðin Flytjandi en Hringrás er við hliðina á okkur.
Það er beygt af Sæbrautinni við Olís bensínstöðina farið niður Sundagarða, farið í hringtorg  og út úr því í Klettagarða.




Helgarnámskeið Kennt frá kl. 17.30 til 22.00 á föstudögum, en 9.00 til 17.00 á laugardögum og sunnudögum. Samkvæmt reglugerð er bóklegi hlutinn 80 st. og með ofanskráðu fyrirkomulagi er námskeiðinu lokið á 9 námskeiðsdögum, sem teknir eru á þremur helgum. Kostnaður við námskeiðið: Námskeiðið sjálft kostar kr.65.000 og bækur lánaðar meðan á námskeiði stendur, en þær kosta annars kr. 7.900 ef fengnar eru til eignar.



Algengustu greiðslukort eru tekin en námskeiðsgjaldi þarf að ganga frá fyrir námskeiðslok og hægt er að greiða það beint til Svavars Svavarssonar skólastjóra á námskeiðsstað eða að borga námskeiðið á skrifstofu skólans í Klettagörðum 11 virka daga á tímanum 8.00 til 16.00 Einnig er hægt að greiða í banka. Mörg stéttarfélög styðja sína félagsmenn í námskeiðið og því er rétt fyrir þig að kynna þér það í þínu félagi.



Nemendur ráða hvort þeir kaupa þá þjónustu hjá skólanum eða ekki. Skólinn getur getur leigt nemum vinnuvélar og kennara eftir þörfum hvers og eins. Kostnaður við þetta er t.d. fyrir gröfu er venjulega 29.900 kr. í R.vík. Reynslan sýnir að meirihluti nemenda hefur aðgang að vélum og leiðsögn hjá vinnuveitendum eða kunningjum, sér að kostnaðarlausu og þurfa því ekki að kaupa sér þessa þjónustu.



Próftaka fer fram hvar sem er á landinu og eftirlitsmenn frá Vinnueftirliti ríkisins annast framkvæmd þess. Réttindaflokkarnir eru nokkrir og hver þeirra kostar kr. 3.520 og skírteinið sjálft kostar kr. 4. 790  Rétturinn til próftöku fyrnist ekki og hægt er að draga þetta eins lengi og þörf er á, og einnig er hægt að bæta í skírteinið síðar.



Vinnuvélastjórinn og starfið; Öryggismál vinnuvélastjórans;Ýtur, búnaður og vinnutækni; Vinnubrögð með vinnuvélum; Gröfur, búnaður og vinnutækni Kranar,búnaður og vinnutækni; Vírar og ásláttur Vökvafræði vinnuvélastjórans; Vélfræði vinnuvélastjórans Vinnuskýrslur; þjöppun jarðefna; jarðlagnir; teikningar; tryggingar, svo eitthvað sé nefnt.

 
Varðandi vinnuvélanámskeiðið: Ekki er nauðsynlegt að byrja á helgi 1, það er sama hver röðin er á helgunum og hægt er að pikka upp eina og eina helgi í einu ef nemi hefur ekki samfelldar 3 helgar (Vélar 1, Vélar 2 og Vélar 3) aflögu í þetta verkefni, en að sjálfsögðu þarf að ljúka öllum helgunum 1-2 og 3. Hafa ber í huga að viðvera er skylda, ef nema vantar meira en 20% í námið er óheimilt að taka bóklegt próf
 
 

Hér er Nýi Ökuskólinn

smelltu á myndina til að skoða kortiðkort

Innskráning